Óskráđur notandi?
 
Ađalsíđa arrow Saga sveitarinnar
2006_0603Drangey0087.JPG

Date: lau 3.jún 2006

Á döfinni

mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Sjúkrahópur: fundur
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 21:30
Kafarahópur: Fyrsti fundur haustsins
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Nýbúar: Fyrsti fundur vetrarins
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:00 - 21:00
Ásgrímshópur: Kynning á dagskrá og sigling
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:30 - 22:30
Rústabjörgunarhópur: Fyrsti fundur Vetrar
ţriđjudagur, 07. sep kl. 20:00 - 23:00
Undanfarar: Fellur nidur
Björgunarsveitin Ársćll - Reykjavík, Seltjarnarnes Prenta Senda

Björgunarsveitin Ársæll varð til við sameiningu Björgunarsveitar Ingólfs í Reykjavík og Björgunarsveitarinnar Albert á Seltjarnarnesi. Eftir stendur ein mjög öflug björgunarsveit tilbúin til starfa á sjó og landi.

 

Starfi sveitarinnar er í dag skipt þannig að í Gaujabúð á Seltjarnarnesi eru bækistöðvar sjóhópa sveitarinnar og rústabjörgunarhóp. Þar hafa hóparnir til starfa tvo slöngubáta og harðbotna björgunarbát. Einnig starfar innan flokksins einn öflugasti kafarahópur sem starfar innan björgunarsveita hér á landi. Í Reykjavíkurhöfn er svo staðsett björgunarskipið Ásgrímur S. Björnsson. Í bækistöð sveitarinnar í Gróubúð, Grandagarði 1 er svo bækistöð land-, bíla- og beltahópa sveitarinnar. Þar eru til taks sérþjálfaðir menn á sviði fjallabjörgunnar, auk sérhæfðra leitar- og skyndihjálparhópa.

Björgunarsveitin Ársæll hefur einnig yfir að ráða fjórum björgunarbifreiðum.

 

Björgunarsveitin Ársæll hefur það að markmiði að innan sveitarinnar séu vel þjálfaðir björgunarsveitarmenn til taks. Til þess að tryggja það stendur sveitin fyrir öflugu fræðslustarfi. Allir félagar sveitarinnar verða að starfa sem nýliðar um 18 mánaða skeið áður en þeir eru teknir inn sem fullgildir félagar. Auk þess er reynt að tryggja að félagarnir séu sem best þjálfaðir til að sinna sínum störfum. Þessi mikla áhersla á þjálfun hefur gert það að verkum að sérþjálfaðir félagar sveitarinnar hafa verið sendir til bjargar jafnt hér innanlands sem erlendis. Félagar úr hópum sveitarinnar hafa verið sendir víða um land til starfa. Einnig má geta þess að félagar í sveitinni eru einnig í Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar og eru sendir á vettvang mikilla náttúruhamfara erlendis.

 

Mikið af sérhæfðum útbúnaði er nauðsynlegur til að sveitin geti sinnt störfum sínum. Þess má geta að sveitin er búin sérhæfðum búnaði sem styrkir starf þeirra hópa sem innan sveitarinnar starfa.

 

Þrátt fyrir góðan búnað er ljóst að mestu verðmæti sveitarinnar eru bundin í fólkinu sem sveitina skipa, en í dag starfa í sveitinni um 120 manns. Til þess að tryggja að félagar sveitarinnar standi undir nafni leitum við til almennings. Flugeldasala er langstærsta fjáröflunarleið sveitarinnar og ef íbúar Reykjavíkur og Seltjarnarnes styðja við rekstur sveitarinnar með kaupum á flugeldum mun sveitin tryggja að hún sé alltaf til taks, búin til bjargar.


 

Dagskrá

« < september 2010 > »
M Ţ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Styrktarađilar


  • Reykjavíkurborg
  • Faxaflóahafnir sf
  • HB Grandi