Óskráđur notandi?
 
Ađalsíđa
Keppandi sem lenti í öðru sæti.

Date: lau 26.mar 2005

Á döfinni

mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Sjúkrahópur: fundur
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 21:30
Kafarahópur: Fyrsti fundur haustsins
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Nýbúar: Fyrsti fundur vetrarins
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:00 - 21:00
Ásgrímshópur: Kynning á dagskrá og sigling
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:30 - 22:30
Rústabjörgunarhópur: Fyrsti fundur Vetrar
ţriđjudagur, 07. sep kl. 20:00 - 23:00
Undanfarar: Fellur nidur
Nýliđastarfiđ Prenta Senda

Smurð vél með kaldan nebba

-Nýliðahópurinn 2004-2005 lítur yfir farinn veg.

Á Ţórisjökli “Hvaða fólk er þetta? Hver er að stjórna þessu dæmi? Hvernig datt mér í hug að koma hingað? Hvað ætli við eigum eftir að gera? Verða kökur? Á ég að þora að mæta aftur næst...?” Einhvernveginn þannig hugsuðum við sennilega flest þegar fyrsti nýliðafundurinn okkar hófst fyrir tæplega einu og hálfu ári. 50 ólíkir einstaklingar úr öllum áttum, saman komnir á einum stað því að okkur langaði öll að prófa að starfa í björgunarsveit.
Þegar dagskráin var kynnt fyrir okkur runnu tvær grímur á marga. Námskeið á námskeið ofan og fjöldamargar helgar undirlagðar undir fjallaferðir, sjóferðir, æfingar... og fleiri námskeið. Hvernig áttum við að komast yfir þetta allt á einu ári?


Í nýliđaprófiÞannig hófst hið stórkostlega ferðalag sem nýliðaþjálfunin okkar var. Hvort sem við vorum stödd á fyrirlestri í Gróubúð eða í hríðarstormi á Þórisjökli vorum við umkringd reyndu björgunarsveitarfólki sem miðlaði þekkingu sinni til okkar af svo mikilli gleði og færni að brosið var eins og frosið á okkur. Sem það reyndar var í kuldanum á fjallamennskunámskeiðunum. Við hlið okkar stóðu félagar okkar í nýliðunum sem urðu þegar fram leið traustir og góðir vinir sem við getum ekki hugsað okkur að skilja við núna.

Á þessu eina ári lærðum við ekki bara fyrstu hjálp, fjallamennsku, rústabjörgun, meðferð slöngubáta, leitartækni og rötun. Við lærðum líka að vinna saman sem ein heild undir álagi, treysta hvoru öðru og að vera tilbúin til að rétta fram hjálparhönd þegar þess gerist þörf. Við komum úr ólíkum áttum og höfðum ólíka reynslu en saman virkum við eins og vel smurð vél. Sú tilfinning ein er fyllilega þess virði að vera svolítið kalt á tánum og nebbanum meðan grenjandi rigningin lemur tjaldið um miðja nótt á Sólheimajökli.

Og allur þessi tími sem átti að fara í þjálfunina? Við tókum varla eftir honum, þetta var svo gaman!Hópurinn sem tók prófiđ
Eftir eitt allra skemmtilegasta ár ævi okkar var komið að því að standa við stóru orðin. Í tæplega þrjátíu klukkutíma samfellt þreyttu ellefu nýliðar próf í öllu sem við höfðum lært. Í þrjátíu klukkutíma samfellt fengum við smjörþefinn að því til hvers er ætlast af björgunarsveitarfólki. Um leið og maður fylltist virðingu fyrir þessum hvunndagshetjum sem fá sjaldnast klapp á bakið, fundum við klárlega að okkur hafði verið kennt vel og að við vorum tilbúin til að takast á við stærri verkefni - læra meira. 

Eftir allt þetta ævintýri höfum við komist að niðurstöðu. Það eru ekki flottustu jepparnir eða nýjustu talstöðvarnar sem gera björgunarsveit að góðri björgunarsveit. Það er allt það gæðafólk sem leggur tíma sinn og metnað í að halda starfinu í sveitinni gangandi og þjálfa nýliða eins og okkur. Þessvegna erum við stolt af því að hafa fengið nýliðaþjálfun í Ársæli.


 

Dagskrá

« < september 2010 > »
M Ţ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Styrktarađilar


  • Reykjavíkurborg
  • Faxaflóahafnir sf
  • HB Grandi