|
Höfundur: Helgi Pétursson
|
|
sunnudagur, 24 janúar 2010 |
|
Síðastliðinn laugardag fóru unglingar í Unglingadeildinni Árnýju í fjallgöngu á Hengilinn. Gengið var frá Nesjavallaveginum og áleiðis á Hengilinn og var veðrið SA hvassviðri og gekk á með mikilli rigningu og slyddu. Þegar komið var upp undir Skeggja, sem er toppurinn á fjallinu, var ekki lengur stætt vegna hvassviðris. Einnig var talsvert af snjó og þurfti að klofa í gegnum suma skaflana upp í mitti. Var því ákveðið að snúa við án þess að ná toppnum og valin önnur leið niður af fjallinu. Unglingarnir stöðu sig eins og hetjur við þessa erfiðu göngu og eiga þeir hrós skilið. Ljóst er að þarna eru efnilegir björgunarsveitarmenn framtíðarinnar.
Annars hefur verið óvenju mikið spurt um unglingadeildina síðustu tvær vikurnar, en ennþá er pláss fyrir áhugasama unglinga.
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 26 janúar 2010 )
|