|
Höfundur: Borgţór Hjörvarsson
|
|
fimmtudagur, 19 ágúst 2010 |
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 31 ágúst 2010 )
|
|
Nánar...
|
|
Viđavangsleitarhundur bćtist í hóp Ársćl |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
miđvikudagur, 25 ágúst 2010 |
|
Um nýliðna helgi var úttektarhelgi hjá Leitarhundum S.L. í Bláfjöllum. Um 16 teymi tóku próf í öllum flokkum A, B og C. Sjá www.leitarhundar.is
Unglingadeild Ársæls ásamt félögum í Ársæl voru á svæðinu og léku „Fígúranta“ s.s týndu sér í svæðinu og teymin leituðu af þeim. Fréttaritari heyrði frá stjórnendum Leitarhunda að sá fríski hópur frá Ársæli hafi staðið sig með prýði og kunna allir þeim bestu þakkir fyrir. Helgin gekk vel og náðu flestir markmiðum sýnum.
Það hefur bæst í öflugan hóp Ársæls nýr „útkallsfélagi“. Ásbjörn Þór og Mýra sem er af retrever tegund tóku B gráðu í víðavangsleit. Mýra er nú á framhalds/ útkallslista og hafa þar með bæst í hóp Theódórs og Huga í viðavangsleit sem tóku A gráðu í sumar á Vestmannsvatni. Sunneva nýliði ásamt Kormáki tóku C gráðu í Bláfjöllum í sporum og eru spennandi tímar framundan með þessum auknum björgum sem Björgunarsveitin Ársæll er að fá.
Björgunarsveitin Ársæll óskar hundum og mönnum til hamingju með prófin og velfarnaðar í starfi.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri talið: Sunneva og Kormákur (sporaleit), Theódór, Ásbjörn og Mýra (víðavangsleit)Ljósm. Guðbjörg Harpa
|
|
Síđast uppfćrt ( mánudagur, 30 ágúst 2010 )
|
|
|
Höfundur: Vilhjálmur Halldórsson
|
|
mánudagur, 23 ágúst 2010 |
|
Stjórn Björgunarsveitarinnar Ársæls auglýsir eftir starfsmanni tímabundið í 6 mánuði. Hugmyndin er að fara í samstarf við Vinnumálastofnum og ef af því samstarfi verður er fyrst og fremst leitað eftir einstaklingi innan sveitarinnar sem er á atvinnuleysisskrá. Við hvetjum þó alla til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 10. september og sendist á
Ţetta netfang er variđ gegn sjálfvirkum spam forritum, ţú verđur ađ leyfa Javascript í vafranum ţínum til ađ sjá ţađ.
. Stefnt er að ráðningu frá og með 1. október og miðast launakjör við kjarasamninga VR.
Um er að ræða átaksverkefni í nokkrum málaflokkum og má þar nefna ítarleg uppfærsla á félagatali, skráning og merking eigna, flokkun og varðveisla ýmissa skjala og fleira sem til fellur.
Af nógu er að taka fyrir kraftmikinn og duglegan starfsmann sem þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi. Þetta er jafnframt afar gott tækifæri til að fá að vinna draumastarfið við að efla og bæta starfsemi björgunarsveiarinnar.
Það er von stjórnar að viðbrögð við þessari auglýingu verði jákvæð enda er það okkar vilji að starfsmaður komi úr okkar eigin röðum og leitum við því fyrst þangað. Nýliðar eru hvattir til að sækja um jafnt semfullgildir félagar.
|
|
|
Höfundur: Vilhjálmur Halldórsson
|
|
mánudagur, 23 ágúst 2010 |
|
Nýlega var auglýst útboð vegna stækkunar Gróubúðar. Nánari upplýsingar má fá á www.strendingur.is.
fimmtudaginn 2 september kl.14.00 rennur út útboðsfrestur, og verður opnun á tilboðum vegna byggingarnar og mun bygginganefnd ásamt fulltrúa frá verkfræðistofunni Strendingi fara yfir öll tilboð sem borist hafa vegna verksins.
Í frammhaldi af opnum tilboða mun bygginganefnd taka sér tíma til að fara yfir öll tilboðin og síðan leggja þau fyrir stjórnir og auka aðalfund
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 02 september 2010 )
|
|
|
Höfundur: Vilhjálmur Halldórsson
|
|
ţriđjudagur, 06 júlí 2010 |
|
Vaskur hópur félaga úr Björgunarsveitinni Ársæli og Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík er nú við störf á Kjalvegi við að leiðbeina ferðamönnum og vera til taks ef eitthvað kemur upp á. Er þetta liður í verkefninu Björgunarsveitir á hálendinu sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir þetta sumarið 4. árið í röð. Vaktin hefur gengið vel og ekkert stórvægilegt komið upp á. Í gær, mánudag, kom óvænt heimsókn en þá litu framkvæmdastjóri og varaformaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar við á Hveravöllum en meðfylgjandi mynd er tekin við það tilefni.
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 06 júlí 2010 )
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 1 - 6 af 74 |