|
Ársćll 3 kominn úr breytingu |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
föstudagur, 30 apríl 2010 |
|
Ársæll 3 kom í hús í dag 30.apríl eftir breytingar. Bíllinn er nú kominn á 35" dekk, eins og upphafleg plön voru um. Er ekki annað að sjá en bíllinn sé hinn glæsilegasti.
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 29 apríl 2010 |
|
Í gær þann 28. apríl var tekin fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Gróubúð.
Ekki er þar með sagt að byggingaframkvæmdir séu hafnar, þar sem ekki hefur verið gengið endanlega frá kostnaðaráætlunum.
Tekin var ákvörðun um skóflustunguna í tengslum við að afmæli Slysavarnadeildar Kvenna í Reykjavík en deildin varð 80 ára þennan sama dag.
Enn er ekki komið á hreint hvenær framkvæmdir hefjast, en áætlað er að húsið verði tilbúið eftir u.þ.b tvö til þrjú ár
Það var verktakafyrirtækið Háfell sem lánaði okkur gröfuna og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir
Sjá má frétt á vef Faxaflóahafna
|
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 30 apríl 2010 )
|
|
|
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík 80 ára |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 29 apríl 2010 |
|
Í gær þann 28. apríl varð Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík 80 ára.
Af því tilefni var efnt til afmælisveislu í veitingahúsinu Nauthól þar sem mættu um 80 manns frá kvennadeildum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt fullrúum frá björgunarsveitum á svæði 1. Nokkrir félagar frá Ársæli voru á staðnum. Veislustjóri var Ómar Ragnarsson, sem einnig skemmti fólki með sínu sprelli eins og honum er einum lagið.
Var það mat manna að vel hefði til tekist í alla staði.
Við óskum Slysavarnadeild Kvenna til hamingju með daginn og vonum að okkar góða samstarf verði jafn gott, hér eftir sem áður.
Sjá má umfjöllun um deildina og afmælið á vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 29 apríl 2010 )
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
föstudagur, 23 apríl 2010 |
|
4 félagar í sveitinni fylgdu mótorhjólamönnum i fyrsta akstri sumarsins.
Ekið var sem leið lá um Hvalfjörð, upp á Akranes þar sem var áð í
klukkutíma. Þar kom svo lögreglan og fylgdi hópnum til Reykjavíkur þar
sem endað var við Fíladelfíukirkjuna.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík bauð þar upp á kökuhlaðborð gegn vægu
gjaldi og tókst það vel, eins og þeirra var von og vísa.
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
föstudagur, 23 apríl 2010 |
|
Í gær sumardaginn fyrsta voru 8 manns að aðstoða við mokstur og hreinsunarstörf á gossvæðinu. Gekk það verk vel, en mikið verk er enn óunnið á svæðinu.
|
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 23 apríl 2010 )
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 13 - 18 af 72 |