Óskráđur notandi?
 
Ađalsíđa
Picture 013

Date: lau 20.jún 2009

Á döfinni

mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Sjúkrahópur: fundur
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 21:30
Kafarahópur: Fyrsti fundur haustsins
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Nýbúar: Fyrsti fundur vetrarins
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:00 - 21:00
Ásgrímshópur: Kynning á dagskrá og sigling
ţriđjudagur, 07. sep kl. 19:30 - 22:30
Rústabjörgunarhópur: Fyrsti fundur Vetrar
ţriđjudagur, 07. sep kl. 20:00 - 23:00
Undanfarar: Fellur nidur

Syndicate

Gosfréttir
Höfundur: Sigurđur Jónsson   
föstudagur, 23 apríl 2010

Í gær sumardaginn fyrsta voru 8 manns að aðstoða við mokstur og hreinsunarstörf á gossvæðinu. Gekk það verk vel, en mikið verk er enn óunnið á svæðinu.

 

Síđast uppfćrt ( föstudagur, 23 apríl 2010 )
 
Súpuhádegi
Höfundur: Vilhjálmur Halldórsson   
laugardagur, 27 mars 2010

supa.jpgSú nýbreytni að bjóða upp á súpu og brauð eitt hádegi fyrir félaga sveitarinnar virðist hafa fallið í góðan jarðveg.  Gjörningurinn var mánudaginn 22. mars og mættu á fjórða tug félaga.  Var það almennt að heyra á viðstöddum að þetta væri komið til að vera sem mánaðarlegur viðburður.  Voru ýmis mál rædd manna á milli en vitaskuld bar nýafstaðna árshátíð mest á góma.

 
Hálendisgćsla 2010
Höfundur: Borgţór Hjörvarsson   
mánudagur, 08 mars 2010

dscn0072.jpgÁrsæll er skráður í Hálendisgæslu á Kjöl þann 2.-9.júlí 2010

Ábyrgðarmenn
Borgþór Hjörvarsson 8965864  Ţetta netfang er variđ gegn sjálfvirkum spam forritum, ţú verđur ađ leyfa Javascript í vafranum ţínum til ađ sjá ţađ.
Jóhann Axelsson   8413020   Ţetta netfang er variđ gegn sjálfvirkum spam forritum, ţú verđur ađ leyfa Javascript í vafranum ţínum til ađ sjá ţađ.
Sigurður S. Jónsson  8962924  Ţetta netfang er variđ gegn sjálfvirkum spam forritum, ţú verđur ađ leyfa Javascript í vafranum ţínum til ađ sjá ţađ.

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 08 mars 2010 )
 
BJSV Ársćll í Veiđivötn og Landmannalaugar
Höfundur: Óskar Andri Víđisson   
mánudagur, 22 febrúar 2010
 
 
Leitarhópur Ársæls var að fara í göngu í Veiðivötnum. Á meðan ætlaði bílahópur að taka bíltúr um Fjallabak. Ég og Inga ákváðum að slást í för en urðum að fara á okkar bíl þar sem að við vorum búin að lofa okkur í sumarbústað á laugardagskvöldið. Farið var af stað á föstudagskvöld úr bænum. Komið var við á Selfossi til að borða og sækja ofn til að vera með í skálanum. Það var sáralítill snjór áleiðinni inn í Veiðivötn og ferðin gekk vel fyrir utan eitt lítið óhapp þar sem afturhlerin á nýju kerruni opnaðist, án þess að nokkuð týndist. Á laugardagsmorgun var bjart og fallegt veður, leitarhópur ætlaði í göngu á Snjóöldu en bílahópur að kíkja inn í Landmannalaugar. Það var örlítið meiri snjór á leiðinni inn í Laugar en samt svo lítið miðað við árstíma, c.a. 10 punda færi alla leið. Planið var að fara í laugina en þegar komið var að lauginni blasti þar við okkur nýtt skilti þar sem varað var við sundmannakláða, þá dvínaði áhuginn fljótlega. Eftir smá nestisstopp var ákveðið að nýta þennan fallega dag og kíkja áleiðis inn í Dómadal og Hrafntinnusker. Bæði Frostastaðaháls og Dómadalsháls voru greiðfærir en þetta eru venjulega helstu faratálmarnir á veturnar á þessari leið. Þegar við vorum að fara upp brekkuna upp á Pokahryggi var loksins fundinn einhver almennilegur snjór, hleypt úr í 3 pund og milligírarnir notaðir til að komast upp brekkuna. Við fórum upp í tæplega 1000m hæð þar sem við fengum fallegt útsýni yfir Fjallabakið. Við snérum við á Pokahryggjum þótt það væri freystandi að halda áfram en bílahópur þurfti að fara aftur inn í vötn og ég og Inga í sumarbústað. Við héldum áfram niður Dómadalin, tókum stuttan hring um Fossbrekkur og Rangárbotna og síðan upp á Landveg. Við Búrfellsvirkjun skildu leiðir.
 
Fleiri myndir hér: http://www.facebook.com/album.php?aid=2051081&id=1503065930&ref=nf 
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 23 febrúar 2010 )
 
Sindri styrkir björgunarsveitirnar
Höfundur: Borgţór Hjörvarsson   
ţriđjudagur, 16 febrúar 2010

Íslenska alþjóða björgunarsveitin  hefur unnið mikilvægt og óeigingjarnt starf á Haíti.

Við björgunarstörfin var meðal annars notast við Seesnake myndavél frá Ridgid.

 

Þegar liðsmaður björgunarsveitarinnar sem var nýkominn heim frá Haítí hafði samband við verslun Sindra til að kanna verð á varahlut í Seesnake myndavélina frá Ridgid sem skemmst hafði við björgunarstörfin þá var það auðveld ákvörðun af Sindra hálfu að tilkynna þeim að Sindri myndi gefa þeim varahlutina.

Auk þess var ákveðið að Sindri gæfi sveitinni aðra samskonar vél ásamt aukahlutum sem auka notkunarmöguleika vélanna og getu björgunarsveitarinnar

“Meðlimur björgunarsveitarinnar sagði að myndavélin hafi komið að góðum notum við störf sveitarinnar á Haítí.  Myndavélin hefur komið á óvart sem ódýr og einfaldur kostur sem virkar við erfiðar aðstæður og eykur fyrst og fremst öryggi sveitarmeðlima og sparar mikinn tíma við leitina að fórnarlömbum.

 

Þar sem Sindri er einnig með umboð fyrir DeWALT verkfæri og flestar björgunarsveitir landsins nota slík tæki hefur Sindri ákveðið að veita björgunarsveitunum fría viðgerðarþjónustu á DeWALT tækjunum til að þau verði ávallt í fullkomnu lagi.

 

Ef einhverjir vilja styrkja rústahóp sveitarinnar þá er reikningurinn 0101-26-040020 og kennitalan 540999-2449. Einnig er hægt að hafa samband í síma 841-3009

Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 16 febrúar 2010 )
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 19 - 24 af 74

Dagskrá

« < september 2010 > »
M Ţ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Styrktarađilar


  • Reykjavíkurborg
  • Faxaflóahafnir sf
  • HB Grandi