Óskráður notandi?
 
Aðalsíða
sjósund og myndataka 048.jpg

Date: fös 9.feb 2007

Á döfinni

mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Sjúkrahópur: fundur
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 21:30
Kafarahópur: Fyrsti fundur haustsins
mánudagur, 06. sep kl. 19:30 - 22:00
Nýbúar: Fyrsti fundur vetrarins
þriðjudagur, 07. sep kl. 19:00 - 21:00
Ásgrímshópur: Kynning á dagskrá og sigling
þriðjudagur, 07. sep kl. 19:30 - 22:30
Rústabjörgunarhópur: Fyrsti fundur Vetrar
þriðjudagur, 07. sep kl. 20:00 - 23:00
Undanfarar: Fellur nidur

Syndicate

BJSV Ársæll í Jökulheimum og Grímsfjalli
Höfundur: Óskar Andri   
mánudagur, 08 febrúar 2010
 
Sex félagar úr bílahóp Björgunarsveitarinnar Ársæls fóru á föstudagskvöld í jeppaferð á 2 bílum. Á föstudagskvöldið keyrðum við í Jökulheima og gistum þar í skála JÖRFÍ. Það voru þarna 4 aðrir bílar á sama ferðalagi og við þannig að það var ákveðið að vera samferða á laugardeginum. Farið var af stað um kl 8 á laugardagsmorgun og fannst hentug leið yfir Tungnaá og var jökullinn mjög greiðfær. Við vorum komin á Grímsfjall korter yfir 10. Skyggnið var búið að vera misgott þannig að það var ákveðið að moka okkur inn í skálana sem eru líka í eigu JÖRFÍ, fá okkur nesti og sjá svo til. Eftir að allir voru búnir að borða hafði veðrið lagast og var þá ákveðið að fara í bíltúr að skoða Grímsvötn og síðan Þórðarhyrnu. Skyggni hélt áfram að koma og fara en allt gekk vel enda gott færi á jöklinum. Við vorum komin til baka seinnipart dags að slappa af í skálanum og síðan tók við eðal grillveisla þar sem Siggi grillaði lamb ofan í snjóhúsi. Það var orðið leiðindar skafrenningur um nóttina og morguninn eftir var ennþá alveg blint þannig að það var brunað niður jökulinn og tekin smá hringur í Veiðivötn í heimleiðinni.
Síðast uppfært ( mánudagur, 08 febrúar 2010 )
 
Haiti 2010 Ársæll
Höfundur: Borgþór Hjörvarsson   
þriðjudagur, 26 janúar 2010

Mikael Róbert Ólafsson, Ingi Haukur Georgsson, Hörður Sveinsson, Haraldur Ísleifur, Guðjón Sigurður Guðjónsson, Ómar Örn Aðalsteinsson

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 26 janúar 2010 )
 
Árný í fjallgöngu
Höfundur: Helgi Pétursson   
sunnudagur, 24 janúar 2010

arny_mini.jpgSíðastliðinn laugardag fóru unglingar í Unglingadeildinni Árnýju í fjallgöngu á Hengilinn.  Gengið var frá Nesjavallaveginum og áleiðis á Hengilinn og var veðrið SA hvassviðri og gekk á með mikilli rigningu og slyddu.  Þegar komið var upp undir Skeggja, sem er toppurinn á fjallinu, var ekki lengur stætt vegna hvassviðris.  Einnig var talsvert af snjó og þurfti að klofa í gegnum suma skaflana upp í mitti.  Var því ákveðið að snúa við án þess að ná toppnum og valin önnur leið niður af fjallinu.  Unglingarnir stöðu sig eins og hetjur við þessa erfiðu göngu og eiga þeir hrós skilið.  Ljóst er að þarna eru efnilegir björgunarsveitarmenn framtíðarinnar.

Annars hefur verið óvenju mikið spurt um unglingadeildina síðustu tvær vikurnar, en ennþá er pláss fyrir áhugasama unglinga.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 26 janúar 2010 )
 
Samningur við Reykjavíkurborg
Höfundur: Borgþór Hjörvarsson   
laugardagur, 23 janúar 2010

 

 

Borgþór Hjörvarsson, f.h. Björgunarsveitarinnar Ársæls, Elsa Gunnarsdóttir, f.h. Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Haukur Harðarson f.h. Hjálparsveitar skáta

Myndir v.undirritunar Samnings við Björgunarsveitir og Reykjavíkurborgar kl. 14.00  föstudag 22. janúar 

 http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/22/reykjavikurborg_styrkir_bjorgunarsveitir_i_reykjavi/

 

 

Síðast uppfært ( laugardagur, 23 janúar 2010 )
 
Útkall Rauður
Höfundur: Borgþór Hjörvarsson   
laugardagur, 30 janúar 2010

 

 

Útkall Rauður

Björgunarsveitir eru á leið upp að Langjökli þar sem tveir einstaklingar, sem voru hluti af hópi sem var í jeppaferð, féllu ofan í sprungu. Tilkynning barst björgunarsveitunum um klukkan eitt. Tveir menn frá Ársæll fóru í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Tveir Jeppar eru á leiðinni frá Ársæll.

Síðast uppfært ( laugardagur, 30 janúar 2010 )
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 25 - 30 af 74

Dagskrá

« < september 2010 > »
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Styrktaraðilar


  • Reykjavíkurborg
  • Faxaflóahafnir sf
  • HB Grandi