|
Ánćgđur međ störf björgunarsveitarinnar |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 25 janúar 2010 |
|
Gísli Rafn Ólafsson, umsjónarmaður alþjóðasveitar Slysavarnafélagsins Landsbjargar, er ánægður með störf íslensku björgunarsveitarinnar á Haítí. „Við erum búnir að vinna mikið þrekvirki hérna,“ segir hann.
„Við náðum þremur manneskjum á lífi. Það er stórvirki eitt sér,“ segir hann.
Hann segir hópinn mjög góðan og búa yfir mikilli reynslu.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/23/anaegdur_med_storf_bjorgunarsveitarinnar/
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 21 janúar 2010 |
|
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin sem verið hefur við störf á Haiti er
nú á heimleið. Sveitin flaug með vél frá Iceland Express frá Haiti í
gær og yfir til Nassau á Bahama eyjum. Þar var gist í nótt. Síðar í dag
verður flogið til Íslands með viðkomu í Halifax. Áætlað er að sveitin
lendi í Keflavík um klukkan 00:30 í nótt en það er nokkuð seinna en áætlað var.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1297&showDate=true
|
|
|
Stór eftirskjálfti á Haiti |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
miđvikudagur, 20 janúar 2010 |
|
Fyrir skömmu varð stór eftirskjálfti um 60 km vestur af Port au Prince á Haiti. Haft hefur verið samband við Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina sem er á staðnum og fengust þær upplýsingar að í lagi væri með alla meðlimi hennar. Sveitin var öll í búðum sínum á flugvallarsvæðinu þegar skjálftinn reið yfir.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1295&showDate=true
|
|
|
Íslenska rústabjörgunarsveitin vćntanleg heim á fimmtudaginn |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
ţriđjudagur, 19 janúar 2010 |
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin kemur heim næsta fimmtudagskvöld.
Utanríkisráðuneytið skipuleggur nú heimkomu björgunarsveitamannanna en
þeir hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður á Haítí í kjölfar
jarðskjálftans þar í síðustu viku.
Sveitin mun í dag vinna í
rústum Montana hótelsins í Port au Prince, höfuðborg Haiti. Á hótelinu
dvöldust starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sem voru við störf á Haiti og
fjölskyldur þeirra þegar skjálftinn reið yfir. Talið er að um 200 manns
séu enn grafnir í rústum hótelsins en litlar líkur eru taldar á að
einhver sé enn á lífi. Munu þeir vinna með sömu bandarísku sveitinni og
undanfarna daga.
Verða sóttir á miðvikudaginn
Þota
frá Iceland Express hefur verið tekin á leigu og er áætlað að hún fari
frá Íslandi á miðvikudagsmorgun og koma til baka á fimmtudagskvöld.
Ferðin til Port-au-Prince verður nýtt til að flytja hjálparstarfsmenn
og neyðargögn frá Rauða krossinum. 34 eru í alþjóðabjörgunarsveitinni
og hefur hún meðferðis allt að 10 tonnum af búnaði.
Utanríkisráðuneytið
segir að ef aukarými verði í vélinni á heimleið, sé áætlað að ferðin
verði nýtt fyrir aðra, hjálparstarfmenn eða erlenda ríkisborgara, líkt
og í síðustu viku.
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 31 - 36 af 74 |