|
Oprah Winfrey mun fjalla um íslensku rústabjörgunarsveitina |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
ţriđjudagur, 19 janúar 2010 |
|
„Það hringdi í mig framleiðandi og vildi nota myndskeið af
björgunarsveitinni," segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi slysavarnarfélags Landsbjargar.
Framleiðandinn,
sem starfar við spjallþátt sjónvarpsdrottningarinnar Opruh Winfrey,
hafði samband við Ólöfu í kvöld og óskaði eftir að fá afnot af myndum
og myndskeiðum sem sýna frá störfum íslensku rústabjörgunarsveitarinnar
á Haítí.
Eins og flestir vita þá er þáttur Opruh einhver
vinsælasti sjónvarpsþáttur veraldar. Að sögn Ólafar þá verður þátturinn
með rústabjörgunarsveitinni sýndur næsta miðvikudag.
„Ég sagði
honum auðvitað að það væri auðsótt mál," segir Ólöf en myndatökumaður á
vegum Saga Film hefur fylgt sveitinni eftir á Haítí og skrásett öll
björgunarafrek sveitarinnar undanfarna daga og reyndar síðustu tvö ár
að sögn Ólafar.
Aðspurð segir Ólöf að framleiðandinn hafi ekki
farið ítarlega í efnistök þáttarins en hann mun ekki eingöngu fjalla um
íslensku sveitina heldur björgunarstarfið í heild sinni.
Íslenska
sveitin verður því annar fulltrúi Íslands í þátt Opruh en
spjallþáttadrottningin tók einnig viðtal við Svanhildi Hólm Valsdóttur
um árið.
Rústabjörgunarsveitin er nú stödd í Port Au Prince.
Líkamlegt ástand björgunarsveitarmannanna er gott að sögn Ólafar en
þeir hafa fengið lítinn svefn undanfarið. Búist er við að þeir komi
heim í vikunni.
http://www.visir.is/article/20100118/FRETTIR01/404165337
|
|
Fundur međ ađstandendum ÍA |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
Í gærkvöldi var haldinn fundur í safnaðarheimili Grensáskirkju með aðstandendum þeirra meðlima Íslensku aljþjóðasveitarinnar sem staddir eru á Haiti.
Farið var yfir hver staðan hjá þeim er í dag og ræddar áætlanir um heimferð sveitarinnar. Sálfræðingur og geðhjúkrunarfræðingur fræddu aðstandendur um hver eðlileg viðbrögð fólks eru við álagi eins og því sem björgunarsveitin hefur upplifað undanfarna daga og Ásgeir Baldur Böðvarsson, meðlimur sveitarinnar sagði frá sinni reynslu af störfum með björgunarsveit á skaðasvæðum.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík bauð fundargestum upp á veitingar.
Góð mæting var á fundinn og hefur verið ákveðið að hópurinn hittist aftur þegar sveitin er komin heim.
|
|
|
Ekki orđiđ vör viđ óeirđir |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
|
Bragi Reynisson, einn íslensku björgunarsveitarmannanna á
Haítí, segir fréttir af óeirðum og gripdeildum eftir jarðskjálftann þar í landi
vera orðum auknar. „Við höfum ekki orðið vör við neitt sem hægt er að kalla
óeirðir,“ segir Bragi.
Íslenska sveitin hefur að sögn Braga einungis fengið jákvæð
viðbrögð frá heimamönnum. „Við höfum fundið að fólk er verulega ánægt með að
hafa okkur hérna; okkur er þakkað fyrir og fólk brosir til okkar.“
Hann segir rétt sem bent hefur verið á um að glæpagengi hafi
ráðið ríkjum í Haítí og skotið hvert á annað fyrir fyrir jarðskjálftann, og þau
haldi áfram fyrri iðju eftir skjálftann. „Ég held að þetta hafi ekkert aukist,“
segir Bragi
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/18/ekki_ordid_vor_vid_oeirdir/
|
|
|
Íslenska sveitin sinnti slösuđum í Léogane |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
|
Íslenska rústabjörgunarsveitin var í gær við störf í borginni
Léogane vestur af höfuðborginni Port au Prince á Haiti. Ástandið í Léogane var
mjög slæmt og fannst enginn á lífi, en sveitin sinnti sjúkrahjálp í
borginni.
„Í gærkvöldi varð nokkuð ljóst að ekki væri þörf á
rústabjörgunarsveitum á þessu svæði, enda búið að bjarga öllum út sem hægt var
að bjarga út,“ segir Bragi Reynisson, einn íslensku björgunarsveitarmannanna á
Haíti.
Því hafi verið ákveðið að halda aftur til höfuðborgarinnar.
„En það var mikil þörf á læknisaðstoð í Léogane, svo við skildum eftir í
sjúkrahúsi í borginni öll þau sjúkragögn sem við teljum okkur ekki hafa þörf
fyrir,“ segir Bragi
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
|
Íslenska aþjóðabjörgunarsveitin var við störf í borginni Léogane vestur
af höfuðborginni Port au Prince á Haiti í gær. Horfið var frá áformum
um að sveitin gisti á svæðinu og fór hún því til búða í gærkvöldi.
Ástandi í Léogane er afar slæmt og leitaði sveitin í rústum en enginn
fannst þar á lífi. Mikið var af slösuðu fólki í borginni og sinnti
sveitin sjúkrahjálp. Einnig kallaði hún eftir alþjóðlegu sjúkraliði á
staðinn og mun hópur fara á staðinn í dag.
Verkefni
sveitarinnar í dag er að leita í rústum í miðborg Port au Prince ásamt
bandarískri sveit sem hún hefur unnið með áður. Ekki er komin nánari
lýsing á verkefnum dagsins.
Ástand meðlima sveitarinnar er
eftir atvikum gott. Þegar rústabjörgunarhópurinn kemur til búða er búið
að hreinsa vatn svo þeir geti farið í sturtu, gætt er að því að allir
fái nóg að borða og að þeir séu að drekka nægt vatn.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg og utanríkisráðuneytið vinna nú að því að undirbúa flutning
sveitarinnar til Íslands. Ekki er þó vitað hvenær sveitin lýkur störfum
á Haiti en þumalfingursreglan er sú að rústabjörgunarsveitir hætta
störfum eftir að 48 klst eru liðnar frá síðasta fundi á lifandi
manneskju á skaðasvæðinu.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1287&showDate=true
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 37 - 42 af 72 |