|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
|
Íslenska aþjóðabjörgunarsveitin var við störf í borginni Léogane vestur
af höfuðborginni Port au Prince á Haiti í gær. Horfið var frá áformum
um að sveitin gisti á svæðinu og fór hún því til búða í gærkvöldi.
Ástandi í Léogane er afar slæmt og leitaði sveitin í rústum en enginn
fannst þar á lífi. Mikið var af slösuðu fólki í borginni og sinnti
sveitin sjúkrahjálp. Einnig kallaði hún eftir alþjóðlegu sjúkraliði á
staðinn og mun hópur fara á staðinn í dag.
Verkefni
sveitarinnar í dag er að leita í rústum í miðborg Port au Prince ásamt
bandarískri sveit sem hún hefur unnið með áður. Ekki er komin nánari
lýsing á verkefnum dagsins.
Ástand meðlima sveitarinnar er
eftir atvikum gott. Þegar rústabjörgunarhópurinn kemur til búða er búið
að hreinsa vatn svo þeir geti farið í sturtu, gætt er að því að allir
fái nóg að borða og að þeir séu að drekka nægt vatn.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg og utanríkisráðuneytið vinna nú að því að undirbúa flutning
sveitarinnar til Íslands. Ekki er þó vitað hvenær sveitin lýkur störfum
á Haiti en þumalfingursreglan er sú að rústabjörgunarsveitir hætta
störfum eftir að 48 klst eru liðnar frá síðasta fundi á lifandi
manneskju á skaðasvæðinu.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1287&showDate=true
|
|
Viđtal viđ Kristin Ólafsson |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
|
Hér er viðtal við Kristin Ólafsson framkvæmdastjóra SL um ferð hans til Haiti með flugvélinni sem flutti björgunarsveitnia okkar. Kristinn var í viðtali á Bylgjunni rétt fyrir kl 9 í morgun
http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=51299
|
|
|
Fólk hefst viđ undir tjöldum |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
sunnudagur, 17 janúar 2010 |
|
Íslensku björgunarsveitarmennirnir á Haítí eru nú
komnir á áfangastað í borginni Léogane og hafa slegið upp búðum þar
ásamt hópi annarra björgunarsveita. Að sögn Gísla Rafns Ólafssonar,
eins stjórnenda sveitarinnar, er eyðileggingin mikil í borginni, en
fram til þess hefur ekkert alþjóðlegt hjálparlið náð á staðinn.
Sjálfur
flaug Gísli yfir svæðið í þyrlu í morgun og segir að á milli
höfuðborgarinnar og Léogane hafi mátt sjá að um 20% húsa voru eyðilögð.
„Þarna var fullt af fólki sem greinilega býr bara undir berum himni og
er með smá tjald eða dúk til að skýla sér fyrir sólinni."
Það
tók sveitina um 90 mínútur að keyra til borgarinnar, um 40 kílómetra
leið og segir Gísli veginn hafa verið í þokkalegu standi. Það sem
hinsvegar tefji hjálparstarf hvað mest í landinu sé vöntun á fleiri
flutningatækjum og erfiðleikar í samskiptum þar sem flestir reiði sig á
stopula gervihnattasíma. Íslenska sveitin sé ein af örfáum sem búi að
því að hafa mjög öflug fjarskiptatæki og talstöðvar auk þess sem þeir
tryggi að sveitin hafi ávallt með sér gervihnattasíma á vettvangi.
Björgunarsveitarmennirnir
munu í dag og á morgun fara um borgina, kanna ástandið og reyna að
finna fólk á lífi áður en snúið verður aftur til höfuðborgarinnar
Port-au-Prince.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/17/folk_hefst_vid_undir_tjoldum/
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
sunnudagur, 17 janúar 2010 |
|
Nú er 26 manna hópur frá Íslensku
alþjóðabjörgunarsveitinni á leið til borgarinnar Léogane, sem er um 40
km vestan við höfuðborgina Port au Prince á Haiti. Íslenska sveitin er
í för með breskri sveit og sveit frá Katar og er allur hópurinn um 100
manns. Þessi hópur er útbúinn til þess að dvelja í Leogane í tvo
sólarhringa.
Léogane er 134.000 manna borg og er staðsett við
upptök jarðskjálftans sem varð á þriðjudag. Er talið að ástandið þar sé
afar slæmt og að allt að 80-90 % bygginga séu hrundar. Ekkert
alþjóðlegt hjálparlið hefur enn farið á staðinn.
Mikið um steinsteypt hús í borginni og því líkur á að þar geti verið að finna fólk á lífi í rústum.
Friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum munu fylgja hópnum og tryggja öryggi hans.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1282&showDate=true
|
|
|
Vinna nćr upptökum skjálftans í dag |
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
sunnudagur, 17 janúar 2010 |
|
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er nú að búa sig undir verkefni
dagsins á Haiti. Mun sveitin að öllum líkindum vinna í bæ um 40 km
vestan við höfuðborgina Port au Prince en enn sem komið er hefur engin
alþjóðleg björgunarsveit farið þangað. Bærinn stendur mun nær upptökum
skjálftans en höfuðborgin og er það mat manna að þar hafi 80-90%
bygginga hrunið í skjálftanum.
Íslenska sveitin var kölluð til
búða snemma í gær þannig að hún hefur fengið góða hvíld, þá fyrstu frá
því hún fór af stað á þriðjudag.
Komið hafa upp tilvik þar sem
alþjóðlegt hjálparlið hefur ekki náð að taka með sér allar birgðir
vegna erfiðleika í flutningum til Haiti og skortir því nauðsynlegar
vistir. Íslenska sveitin hefur því verið að deila mat sínum og vatni
með öðrum björgunaraðilum en gert er ráð fyrir að meiri vistir berist
áður en þær verða á þrotum. Íslenska sveitin á að vera sjálfbær með
búðir, vistir og læknishjálp í 7-10 daga því ekki þykir forsvaranlegt
að hún valdi álagi á veika innviði landa sem verða fyrir skaða.
Fleiri myndir frá Haiti eru komnar inn á myndabanka Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
http://landsbjorg.is/Article.aspx?catID=466&ArtId=1281&showDate=true
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 43 - 48 af 74 |