|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
miđvikudagur, 19 maí 2010 |
|
Langþráð stund rann upp mánudaginn 17. mai. er nýr bátur kom í hús. Er þar um að ræða bát sem keyptur var notaður af RNLI í Bretlandi.
|
|
Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 19 maí 2010 )
|
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 13 maí 2010 |
|
Laugardaginn 15. maí verður kynning á sveitinni í Byko Kauptúni.
Um er að ræða útivistarhelgi hjá Byko og verða ýmsir aðilar með kynningu
á starfsemi sinni og leituðu þeir til okkar varðandi kynningu á
björgunarsveit.
Ef vel gengur verður sunnudagurinn nýttur líka. Vonumst við til að félagar taki vel í að sinna þessu verkefni.
|
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 14 maí 2010 )
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 13 maí 2010 |
|
Slysavarnardeildin Varðan hefur ákveðið
að tileinka árlega Vörðudaginn okkar slysavörnum og fræðslu fyrir heldri borgara í
bæjarfélaginu okkar og jafnframt að
kynna fyrir þeim starf björgunarsveita og slysavarnardeilda.
Laugardaginn
15.
maí klukkan 14:00 bjóðum við þeim til okkar í Gaujabúð
við Bakkavör þar sem skemmtileg dagskrá er í boði.
Vonast deildin til að sjá sem flesta.
Á dagskrá verður:
Fyrirlestur um slysavarnir í umferðinni og á heimilum.
Fyrirlesari er Herdís Storgaard.
Myndasýning frá björgunarstarfinu á Haítí.
Kaffi, meðlæti, spjall og tónlist í boði Vörðunnar
|
|
|
Höfundur: Sigurđur Jónsson
|
|
fimmtudagur, 13 maí 2010 |
|
Þriðjudaginn 11. maí síðastliðinn var haldinn sveitarfundur í Gróubúð.
Meðal efnis á fundinum var umræða um fyrirhugaða viðbyggingu við Gróubúð.
Theodór Bjarnason fulltrúi Byggingarnefndar mætti á fundinn og skýrði frá kostnaðaráætlun og gerði grein fyrir breytingum sem þarf að gera á henni.
Nokkrar umræður sköpuðust, en voru þær nokkuð minni en margir höfðu gert ráð fyrir.
Er ljóst að leggja þarf út í mikla vinnu við öflun fjár svo byggja megi á sem skemmstum tíma, ef ekki á að leggja út í miklar lántökur sem óvíst er að fáist nema á háum vöxtum og með miklum aukakostnaði.
Teikningar af húsinu hafa legið fyrir um nokkurt skeið og hafa menn verið að skoða þær og velta fyrir sé.
Halda þarf fleiri slíka fundi áður en kallað verður til aukaaðalfundar þar sem byggingarframkvæmdir verða bornar upp til samþykktar.
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 13 maí 2010 )
|
|
|
Höfundur: Vilhjálmur Halldórsson
|
|
fimmtudagur, 06 maí 2010 |
|
Sveitarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, frestast vegna umfangsmikillar leitar að karlmanni innanbæjar í Reykjavík. Við hvetjum alla félaga til að mæta í Gróubúð og taka þátt í leitinni. Fundurinn verður haldinn í Gróubúð þriðjudaginn 11. maí kl. 20:00.
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 06 maí 2010 )
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 7 - 12 af 72 |